1. Almenn ákvæði

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu www.Betrikaup.is. Eigandi Betrikaup.is er Vörur ehf., kt. 700320–1460, Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík. Til einföldunar verður hér eftir talað um www.Betrikaup.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Betrikaup.is annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir við nýskráningu á vefsíðu betrikaup.is teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu.
„Kaupandi“ er einstaklingur, sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 16 ára. „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki en lög um um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir. Betrikaup.is selur vörur eða þjónustu til kaupanda á vefsvæði sínu. Betrikaup býður einnig kaupanda að fá vöruna senda heim til sín eða sækja í þjónustuver.

2. Upplýsingar og verð

Verð á vefsvæði Betrikaup.is og í útsendum póstum eru með virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. betrikaup.is áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Betrikaup.is mun upplýsa kaupanda um allt slíkt eins fljótt og kostur er, og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem kaupanda gefst kostur á að samþykkja eða hafna.

3. Persónuupplýsingar

Á Betrikaup.is er aðgengileg persónuverndarstefna félagsins. Í þessari persónuverndaryfirlýsingu kemur fram hvernig betrikaup.is umgengst þær persónuupplýsingar sem betrikaup.is geymir um kaupanda og hvaða réttindi hann á varðandi upplýsingarnar.

4. Aðgangur

Kaupandi hefur leyfi til að nota Betrikaup.is og þá þjónustu sem þar er boðið upp á í samræmi við skilmála þessa og þær aðgangstakmarkanir sem Betrikaup.is setur. Stranglega er bannað að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu inn á Betrikaup.is. Betrikaup.is áskilur sér rétt til að vinna náið með lögreglu við úrlausn slíkra mála, þ.m.t. að veita henni þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru. Verði kaupandi uppvís að sviksamlegu athæfi við kaup á Betrikaup.is verður það tilkynnt til lögreglu. Betrikaup.is áskilur sér rétt til að takmarka eða loka fyrir aðgang að Betrikaup.is ef grunur leikur á að kaupandi hafi orðið uppvís að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu.

5. Innskráning, pöntun og afhending

Við fyrstu innskráningu á Betrikaup.is skráir kaupandi fullt nafn, kennitölu, heimilisfang og tölvupóstfang sitt og samþykkir að hann hafi lesið persónuverndarstefnu félagsins. Einnig getur kaupandi samþykkt að vera á póstlista og SMS lista Betrikaup.is. Pöntun kaupanda á Betrikaup.is er bindandi þegar hann hefur staðfest pöntun sína í kaupferlinu. Betrikaup.is er skuldbundið að afgreiða pöntun kaupanda (nema í tilvikum sem nefnd eru í 2. grein þessara skilmála) og sendir kaupanda staðfestingu með SMS og tölvupósti. Jafnframt sendir Betrikaup.is kaupanda afrit af reikningi þ.e. ef greiðsla berst frá kaupanda. Kaupanda er bent á að kynna sér vel staðfestingu á pöntun þegar hún berst. Í kaupferlinu velur kaupandi sér sendingarleið og sendingartíma. betrikaup.is leggur sig fram um að afhenda vöru á réttum tíma til kaupanda og upplýsir hann með SMS og á vefsvæði betrikaup.is hvenær vara er væntanleg til hans. Ef kaupandi hefur valið að fá sendingu með Póstinum þá ber Betrikaup.is ekki ábyrgð á afhendingartíma sendingarinnar. Pósturinn getur ekki sent stórar sendingar heim að dyrum alls staðar á landinu. Nánari upplýsingar um þjónustu póstsins má finna á heimasíðu Póstsins.

6. Yfirferð á vöru

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að byrja á því að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar sem fylgja með vörunni. Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu þá þarf hann að senda tilkynningu þess efnis með tölvupósti eða hafa samband við þjónustuver Betrikaupa.is Betrikaup.is áskilur sér rétt að sannreyna staðhæfingu innan 7 daga.

7. Samningurinn

Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála Betrikaup.is. Skilmálarnir eru aðgengilegir á vefsvæði Betrikaup.is. Hver kaup eru bindandi fyrir kaupanda samkvæmt skilmálum og skilyrðum Betrikaup.is.

8. Greiðsla

Greiðslu getur kaupandi innt af hendi á ýmsa vegu:

  • Kredit- eða debetkort: Greiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með kreditkorti fer fram í gegnum örugga greiðslugátt sem kaupanda er beint sjálfkrafa til þegar hann fyllir út greiðsluupplýsingar. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu. Einnig er hægt að nýta sér raðgreiðslur með kreditkorti.
  • Millifærsla: Ef óskað er eftir að greiða með millifærslu þarf kaupandi að millifæra yfir á reikning Betrikaup.is og setja í tilvísun/stutt skýring númer á pöntun. Ef Betrikaup.is hefur ekki móttekið greiðslu innan tveggja daga falla kaupin sjálfkrafa niður.
  • Netgíró: Kaupandi samþykkir að nota þjónustu Netgíró. Einnig er hægt að nýta sér raðgreiðslur með Netgíró. Frekari upplýsingar um virkni þjónustunnar má finna á netgiro.is.
  • Inneign: Ef kaupandi á inneign hjá Betrikaup.is getur hann greitt pöntun að hluta eða öllu leyti með inneign sinni.

9. Skilaréttur

Betrikaup.is skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu fyrir kaupum í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt. Kaupandi getur skilað vöru til Betrikaup.is innan 14 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda að fullu, að undanskildum vörum í lið 9.2 að neðan. Betrikaup.is áskilur sér rétt til að skoða að varan sé í lagi og til að koma í veg fyrir misnotkun á 14 daga skilarétti. Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi ásamt umbúðum en ekki er skilyrði að hún sé ónotuð, að undanskildum vörum lið 9.1 og 9.2 að neðan. Reikningur eða kvittun fyrir kaupum eru skilyrði fyrir vöruskilum. Einnig þurfa allir aukahlutir að fylgja með vörunni.
9.1 Aðeins er tekið við þessum vörum í óopnuðum umbúðum:

  • Farsímar, tölvur, leikjatölvur og snjall- og heilsuúr.
  • Rekstravörur, blekhylki, rafhlöður, pappír, ljósaperur, skrifstofuvörur o.s.frv.
  • Bækur, DVD og Blu-ray myndir, tónlist, tölvuleikir og spil.
  • Sundföt.

9.2 Eftirfarandi vörur eru ekki með skilarétti:

  • Matur og drykkir.
  • Heilsuvörur s.s. vítamín, bætiefni, fæðubótarefni o.s.frv.
  • Hárvörur, ilmvötn og body spray, förðunarvörur og snyrtivörur.
  • Unaðsvörur.
  • Undirföt s.s. sokkabuxur, nærföt.

Ef til endurgreiðslu kemur innan 14 daga frá kaupum, skv. tilmælunum, mun Betrikaup.is endurgreiða kaupanda vöruna á sama hátt og viðskiptavinur notaði við greiðslu – þ.e. með bakfærslu á kredit- eða debetkorti, niðurfellingu á Netgíró kröfu, innlögn á bankareikning eða með inneign hjá Betrikaup.is sem kaupandi getur ráðstafað að vild í næstu kaupum hjá Betrikaup.is.

10. Galli

Ef vara er gölluð er Betrikaup.is skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 á kaupandi rétt á því að fá gallaða vöru bætta ef tilkynning berst okkur innan tveggja mánaða frá því að kaupandi varð var við galla. Betrikaup.is mælir með því að kaupandi sendi tölvupóst eða hringi í þjónustuver Betrikaup.is sem fyrst frá því að galli uppgötvast. Betrikaup.is sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Betriaup.is áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð innan 7 daga.

11. Verðvernd

Betrikaup.is býður upp á verðvernd á raftækjum. Ef kaupandi kaupir raftæki á Betrikaup.is og finnur sömu vöru á lægra verði í annarri verslun á Íslandi innan 30 daga getur hann fengið mismuninn endurgreiddan. Verðverndin gildir ef raftækið er fáanlegt þegar kaupandi gerir kröfu um endurgreiðslu og ef um nákvæmlega sama raftæki er að ræða (með sama vörunúmer) sem er boðið á sambærilegan hátt með sömu kaupskilmálum (s.s. ábyrgð og afhendingartíma). Verðvernd gildir ekki um raftæki utan Íslands eða um raftæki sem keypt eru í fríhöfn, án ábyrgðar eða án þjónustu. Við útreikning á endurgreiðslu verður tekið tillit til þess gjalds sem samkeppnisaðili Betriaup.is kann að rukka fyrir heimsendingu nema viðskiptavinur hafi sótt vöruna sjálfur til Betrikaup.is.

12. Ábyrgð

Ábyrgð Betrikaup.is hefur ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup nr. 48/2003. Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við lög um neytendakaup og miðast við dagsetningu kaupa til einstaklinga. Ef um er að ræða sölu til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár frá kaupdagsetningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000.
Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits eða notkunar á vöru sem eðlilegt þykir að endist skemur en 2 ár s.s. rafhlöður í farsíma og getur þurft að endurnýja fyrir lok ábyrgðar. Ábyrgð fellur úr gildi ef vara hefur verið opnuð eða átt við hana án samþykkis Betrikaup.is þrátt fyrir að þar hafi verið viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur líka úr gildi ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar. Ekki er ábyrgð á hugbúnaði.
Betrikaup.is er ekki skuldbundið til að sjá um viðgerð á vöru, gefa afslætti eða skipta út vöru eftir að ábyrgðartíma lýkur. Betrikaup.is áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála innan 7 daga. Ef vara fellur undir ábyrgðarskilmála þá er Betrikaup.is skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa.

13. Eignarréttur

Seldar vörur eru eign Betrikaup.is þar til kaupverð er greitt að fullu.

14. Annað

Betrikaup.is áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðu Betrikaup.is telst nægileg tilkynning. Litið er svo á að kaupandi hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.

15. Ágreiningur

Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.

16. Gildistími

Skilmálar þessir gilda frá 1. júní 2020.